Birtir sömu myndina af Ingvari E. á hverjum degi

Facebook-síða sem birtir sömu mynd af leikaranum Ingvari E. Sigurðssyni á hverjum degi er kominn með hátt í 4.000 aðdáendur. Fyrsta myndin birtist 5. janúar og hefur birst daglega síðan.

Myndin, sem má sjá hér fyrir ofan nýtur mikillar hylli á hverjum degi en á milli 400 og 700 manns líka við hana að jafnaði. Þá birta spenntir aðdáendur skilaboð á síðunni þar sem þeir segjast bíða spenntir eftir næstu mynd, sem er þó ávallt sú sama.

Engin skilaboð fylgja myndinni. Eina sem kemur fram á síðunni er að sama myndin af Ingvari E. muni birtast á síðunni á hverjum degi, eitthvað þúsundir Facebook-notenda kunna vel að meta.

Hér má sjá myndina sem birtist í dag. Hún er sú sama og birtist í gær. Og daginn þar áður.

Auglýsing

læk

Instagram