Björn Bragi gagnrýndur fyrir nýju sýninguna: „Hvaða súrrealíska níðingssamfélagi er ég frá?“

Björn Bragi Arnarsson tilkynnti í gær að hann hyggðist snúa aftur á svið í haust. Uppistandið Björn Bragi Djöfulsson verður frumsýnt föstudaginn 13. september í Gamla bíói. Björn Bragi þakkar Leoncie fyrir heitið á sýningunni en hún kallaði hann þessu nafni í kommentakerfi DV á sínum tíma.

Björn Bragi hefur látið lítið fyrir sér fara eftir að myndband af honum að káfa á 17 ára stelpu komst í fréttirnar hér á landi. Hann ákvað þó að nú væri tími til að koma sér í sviðsljósið á nýjan leik en margir eru á því að það sé galin hugmynd.

Hér að neðan má sjá brot úr umræðunni á Twitter:

Auglýsing

læk

Instagram