Bubbi og Björk á Iceland Airwaves

Björk Guðmundsdóttir og Bubbi Morthens koma fram á Iceland Airwaves-hátíðinni í nóvember. Skipuleggjendur hafa tilkynnt fleiri listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár en alls verða þeir um 200.

Bubbi kemur fram ásamt hljómsveitinni Dimmu. Björk sendi nýlega frá sér plötuna Vulncura en hátíðin fer fram dagana 4. til 8. nóvember.

Miðasalan er hafin á heimasíðu Iceland Airwaves og hvetja skipuleggjendur áhugasama um hafa hraðar hendur en undanfarin ár hefur selst upp á hátíðina í byrjun september.

Listamennirnir sem bætast við eru:

Björk
John Grant with the Iceland Symphony Orchestra (US/IS)
Father John Misty (US)
La Priest (UK)
Låpsley (UK)
The Pop Group (UK)
Verité (US)
Sóley
Bubbi og Dimma
Agent Fresco
Mammút
Hundred Waters (US)
Sea Change (NO)
Vök
Emmsjé Gauti
Ho99o9 (US)
Ylja
AmabAdama
Muck
Hekla

Auglýsing

læk

Instagram