Charles Manson slítur trúlofuninni: Unnustan ætlaði að selja aðgang að líki hans

Raðmorðinginn Charles Manson og hin 27 ára gamla Afton Elaine Burton eru hætt við a gifta sig eftir að upp komst að hún var ekki öll þar sem hún er séð.

Sjá einnig: Konan sem ætlar að giftast Charles Manson

Breska dagblaðið Telegraph hefur eftir blaðamanninum Daniel Simone að unnusta Manson hafi ætlað að giftast honum til að eignast lík hans svo hún og vinir hennar gætu stillt því upp og haft til sýnis.

Þau töldu að uppátækið gæti laðað að fjölda fólks og orðið ansi arðbært. Manson komst að þessu og hefur ekki lengur áhuga á að kvænast Simone.

Hugmynd hennar og vina hennar hefði líka getað orðið illframkvæmanleg þar sem Manson telur sig vera ódauðlegan, samkvæmt Simone:

Hann segir að muni aldrei deyja. Þannig að honum finnst þessi hugmynd bara heimskuleg.

Í nóvember fékk Man­son heim­ild til að ganga í hjóna­band. Þetta kom fram á vef BBC.

Afton Elaine Burton hafði heimsótt Manson í fangelsi í Corcoran í Kaliforníu undanfarin ár. Hún kallar sig Star og sagðist í viðtali við CNN á síðasta ári hafa byrjað að kynna sér Manson 16 ára gömul.

Hún segist hafa heillast af Manson eftir að hún las umhverfisstefnu hans, sem hann kallar ATWA, eða air, trees, water og animals. Burton flutti til Corcoran í óþökk foreldra sinna og birtir stuðningsbréf frá aðdáendum Manson á bloggsíðu sinni.

Vefsíðan Manson Direct hefur birt myndir af parinu.

Beiðni Manson um reynslulausn hefur verið hafnað 16 sinnum en til stendur að taka fyrir næstu beiðni hans eftir 13 ár. Burton hefur sagt að hún trúi á sakleysi Manson.

Auglýsing

læk

Instagram