Daniel Radcliffe er svakalegur rappari

Leikarinn Daniel Radcliffe er mikill aðdáandi Eminem og sagði í viðtali við Jimmy Fallon í gær að hann hafi lært texta rapparans þegar hann var yngri.

Radcliffe er þekktastur fyrir hlutverk sitt í Harry Potter-myndunum en hver vissi að hann gæti rappað?

Hér tekur Radcliffe stafrófslagið Alphabet Aerobics með Blackalicious og gerir það svo svakalega að áhorfendur standa upp og klappa þegar flutningnum lýkur.

Og það gerðum við líka hér á skrifstofu Nútímans:

Fylgdu Nútímanum á Facebook og þú missir ekki af einni einustu frétt.

Auglýsing

læk

Instagram