Edda Sif snýr aftur á RÚV

Edda Sif Pálsdóttir hefur snúið aftur á RÚV, eftir að hafa starfað á Stöð 2 undanfarið misseri. Þar starfaði hún í Íslandi í dag en fjölmiðlaferillinn hófst á RÚV. Hún er því komin heim.

Og hvernig er það?

„Það er bara hrikalega huggulegt. Það stóðu hér allir með opinn faðminn og buðu mig velkomna heim,“ segir Edda Sif í samtali við Nútímann.

Ég er að fara í skemmtilegt verkefni svo þetta er bara spennandi. Svona er íslenskur fjölmiðlaheimur, það fer allt í hringi.

Edda verður meðal annars í nýjum íþróttaþætti ásamt því að stökkva í hitt og þetta, eins og hún orðar það sjálf.

„Innslög fyrir Landann, umfjöllun í kringum beinar útsendingar í íþróttunum og fleira,“ segir hún.

Auglýsing

læk

Instagram