Fimm ára strákur slær í gegn á Youtube

Myndband sem sýnir hinn fimm ára gamla Noah Ritter lýsa leiktæki í skemmtigarði í Wayne-sýslu í Bandaríkjunum hefur fengið meira en fimm milljón áhorf á Youtube. Myndbandið birtist á mánudaginn og hefur farið eins og eldur í sinu um netheima.

Sjónvarpskonan fékk Ritter litla í viðtal og byrjaði hann á því að lýsa yfir að hann hafi aldrei áður verið í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Hann lýsir svo leiktækinu á einstakan hátt — svo einstakan að myndbandið hefur slegið í gegn og birst á mörgum af helstu fréttasíðum heims.

Auglýsing

læk

Instagram