Hóta að hætta við að spila á Þjóðhátíð

Hljómsveitirnar Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Agent Fresco Sturla Atlas og rapparinn Emmsjé Gauti ætla ekki koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár nema skýr stefnubreyting komi frá bæjaryfirvöldum. Kynferðisbrot eigi aldrei að þagga niður. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Uppfært: Rapparinn GKR hefur slegist í hópinn og kemur ekki fram á Þjóðhátíð að óbreyttu.

„Við getum ekki, sem flytjendur og listamenn á þessari hátið, komið fram vitandi það að einhverjir úr áhorfendaskaranum verði fyrir kynferðisofbeldi ef að bæjaryfirvöld og lögreglustjórinn í Vestmanneyjum hafa ekki gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir það,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu á vef RÚV.

Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að lögreglan í Vestmannaeyjum ætli ekki að upplýsa fjölmiðla um tilkynnt kynferðisbrot á Þjóðhátíð í Eyjum fyrr en eftir hátíðina. Páley sagði það gert til að vernda brotaþola frá ytra álagi og auka líkur á góðri frásögn.

Í yfirlýsingunni frá hljómsveitunum kemur fram að krafa þeirra sé sú að lögregluyfirvöld í Vestmanneyjum temji sér þau vinnubrögð sem Landsspítalinn og Stígamót telji vera æskilegust.

 

Yfirlýsingu má sjá hér fyrir neðan:

Okkur blöskra viðbrögð yfirvalda í Vestmanneyjum við háværum kröfum samfélagsins undanfarna daga. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er frábær hátíð en kynferðisbrot á aldrei að þagga niður.

Þjóðhátið, Vestmanneyingar og við öll eigum að úthýsa kynferðisofbeldi með öllum tiltækum ráðum.

Í ljósi orðræðu og verklags lögreglustjórans í Vestmanneyjum undanfarna daga sem gengur þvert á þöggunarumræðuna sem hefur átt sér stað undanfarin ár í íslensku samfélagi, sjáum við okkur ekki annan kost í stöðunni en að draga okkur úr dagskrá Þjóðhátíðar í ár nema skýr stefnubreyting komi frá bæjaryfirvöldum og lögreglustjóra og það strax.

Við getum ekki, sem flytjendur og listamenn á þessari hátið, komið fram vitandi það að einhverjir úr áhorfendaskaranum verði fyrir kynferðisofbeldi ef að bæjaryfirvöld og lögreglustjórinn í Vestmanneyjum hafa ekki gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir það.

Okkar krafa er sú að lögregluyfirvöld í Vestmanneyjum temji sér þau vinnubrögð sem Landsspítalinn og Stígamót telji vera æskilegust.

Og þá tala ég fyrir hönd eftirfarandi hljómsveita:
Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas.

Kær kveðja Strákarnir

Auglýsing

læk

Instagram