Forsætisnefnd staðfestir álit siðanefndar vegna Þórhildar Sunnu

Forsætisnefnd Alþingis hefur staðfest niðurstöður siðanefndar þingsins þess efnis að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata hafi brotið siðareglur fyrir alþingismenn með ummælum sínum um Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokssins.  Þetta kem­ur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Sjá einnig: Ákvörðun siðanefndar gagnrýnd: „Sýnir það og sannar að karlmenn komast upp með töluvert alvarlegari hluti en kvenmenn“

Þórhildur lét ummælin falla í sjónvarpsþættinum Silfrinu í febrúar á síðasta ári. Hún sagði að „rökstuddur grunur um að Ásmundur Friðriksson hefði dregið sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá viðbrögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rannsókn á þessum efnum.“ Ásmundur kvartaði í kjölfarið til forsætisnefndar þingsins sem vísaði málinu til siðanefndar.

Siðanefnd Alþing­is komst að þeirri niður­stöðu að um­mæli henn­ar um Ásmund, einkum um­mæli um að rök­studd­ur grun­ur væri uppi um refsi­verða hátt­semi hans, bryti gegn siðaregl­un­um.

Álit forsætisnefndar verður birt á vef Alþingis í dag en það var afgreitt í forsætisnefnd á föstudaginn, degi eftir að þingstörfum lauk.

Auglýsing

læk

Instagram