today-is-a-good-day

#FreeTheNipple dagur í framhaldsskólum í Reykjavík

Sérstakur #FreeTheNipple dagur verður í allavega þremur framhaldsskólum á morgun; Menntaskólanum í Reykjavík, Menntaskólanum við Hamrahlíð og Verzlunarskóla Íslands. Ein af upphafskonunum hefur hreinlega grátið úr gleði í dag.

Sannkölluð bylting stendur nú yfir á Twitter og hundruð, ef ekki þúsundir framhaldsskóla- og háskólanema taka þátt í umræðu, sem flokkuð er með kassamerkinu #FreeTheNipple, og snýst um jafnan rétt kvenna og karla til að vera ber að ofan á eigin forsendum.

Sjá einnig: Brjóstabylting á Twitter

Byltingin hófst í umræðu um #FreeTheNipple daginn í Verzló á Twitter. Verzlunarskólanemandinn Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir birti mynd af sér sem var aðeins í nokkrar mínútur samfélagsmiðlinum áður en hún tók hana út. Ungur maður gerði lítið úr Öddu í hádeginu í dag en stuðningsyfirlýsingum hefur rignt yfir hana og málstaðinn síðan.

Hún segir í samtali við Nútímann að baráttan snúist um að konur eigi að geta verið berar að ofan eins og strákar. Að litið sé á það sem eðlilegan hlut.

Kassamerkið #freethenipple er notað til að krefjast þess að konur geti verið berar að ofan á myndum, rétt eins og karlar, án þess að þær séu að reyna að vera kynþokkafullar.

Adda er mjög ánægð með viðbrögðin. „Ég er búin að vera hágrenjandi úr gleði í allan dag. Þetta er búið að vera dásamlegt,“ segir hún.

Hún segir ungt fólk vera mjög meðvitað um jafnréttismál og bendir á að könnun sem gerð var í Verzló sýnir að femínistum hefur fjölgað úr 30 í 80 prósent á meðal nemenda frá árinu 2013.

Hér má sjá tíst frá femínistafélagi Verzlunarskóla Íslands þar sem lýst er hvað felst í #FreeTheNipple-deginum, sem verður í allavega þremur framhaldsskólum á morgun.

MR og MH verða einnig með:

https://twitter.com/Nr1BurgerGurl/status/580756684995457024

Auglýsing

læk

Instagram