today-is-a-good-day

Furðusaga úr fortíð forsætisráðherra, lét teikna nýja útskriftarmynd af sjálfum sér í MR

Í Menntaskólanum í Reykjavík er hefð fyrir því að hver útskriftarárgangur lætur teikna skopmynd af sér í bók sem heitir Fauna. Þegar Sigmundur Davíð útskrifaðist þá var hann eitthvað ósáttur við niðurstöðu bekkjarteiknarans og keypti upp á sitt einsdæmi teikningu frá öðrum teiknara.

Eins og myndirnir fyrir neðan sýna er myndin af Sigmundi allt öðruvísi en hinar myndirnar. Sigmundur lét teikna sig með sverð og skjöld, sveitabæ í bakgrunni ásamt kastala og bókum.

Þegar myndirnar eru teiknaðar safnar bekkurinn saman skemmtilegum ummælum um viðkomandi sem síðan eru sett inn á myndina. Sigmundur Davíð fór ekki þessa leið og valdi sjálfur þau ummæli sem hann vildi að rötuðu inn á skopteikninguna í Faunu.

Hér má sjá myndina af Sigmundi. Smelltu til að stækka. Athyglisvert ert að skoða ummælin sem hann valdi á myndina.

Hér má svo sjá fleiri myndir til samanburðar.

IMG_6312 IMG_6317 IMG_6315  IMG_6313 IMG_6314

Eins og sjá má er myndin af okkar manni ansi frábrugðin hinum. Annar stíll

IMG_6316

Auglýsing

læk

Instagram