Guðmundur Pálsson deildi vandræðalegri sögu: Gleymdi texta lags um Vigdísi fyrir framan Vigdísi

Guðmundur Pálsson, Baggalútur með meiru, deildi vandræðalegri sögu á sviðinu á 35 ára kosningarafmæli Vigdísar Finnbogadóttur í gær. Myndband af sögunni má sjá hér fyrir neðan.

Hann rifjaði upp þegar Baggalútur kom fram á afmæli Vigdísar á sínum tíma í Háskólabíói.

Þá gerðist það sem á aldrei að gerast að ég steingleymdi textanum. Ég stóð þarna og Vigdís sat beint fyrir framan mig.

Lagið hófst og Guðmundur mundi ekki textann. Hann fékk litla hjálp frá félögum sínum á sviðinu — ekki einu sinni höfundinum Braga Valdimar.

Auglýsing

læk

Instagram