Gunnar Nelson berst í Svíþjóð í október

Gunnar Nelson berst í aðalbardaga kvöldsins á bardagakvöldi UFC í Stokkhólmi í 4. október. Andstæðingur Gunnars verður Rick Story en hann er í 15. sæti á styrkleikalista UFC bardagasambsins yfir veltivigtarflokki. Gunnar er í 12. sæti á sama lista.

„Þetta er bara draumur – það er frábært að vera í aðalbardaganum hjá nágrönnum okkar í Svíþjóð,“ segir Gunnar í samtali við Vísi.

Aðdáendur Gunnars fagna bardaganum í athugasemdakerfinu á Facebook-síðu Gunnars.

Gunnar Nelson barðist síðast við Bandaríkjamanninn Zak Cummings í Dublin í júní og sigraði hann í annarri lotu.

Auglýsing

læk

Instagram