Hafþór Júlíus tapar í sjómanni, sjáðu myndbandið

Kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson, sterkasti maður Evrópu, tapaði á dögunum í sjómanni fyrir Devon Larratt. Myndband af „bardögunum“ þeirra má sjá hér fyrir neðan.

Larratt þessi er helmingi léttari en Hafþór en hann kann ýmislegt fyrir sér í íþróttinni, enda núverandi þungavigtarmeistari í hjá World Armwrestling League-sambandinu. Hann er semsagt atvinnumaður í greininni.

Svo virðist sem Larratt reyni að leiðbeina Hafþóri á meðan á keppni stendur. Myndbandið sýnir einnig að hann kann öll trikkin í bókinni og virðist hafa fullkomnað tæknina.

Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram