Hefur þú séð þennan mann? Lögreglan leitar að honum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til meðferðar. Er maðurinn vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.

Þeir sem vita hver maðurinn er, eða hvar hann er niðurkominn, eru enn fremur beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

https://www.facebook.com/logreglan/posts/1601911836539025

Auglýsing

læk

Instagram