Heimir Hallgrímsson hættir með landsliðið: „ Ég skil sáttur og þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af þessari sterku liðsheild”

Heimir Hallgrímsson verður ekki áfram þjálfari A landsliðs karla í fótbolta. Frá þessu var greint á vef Knattspyrnusambands Íslands fyrir skemmstu.

Mikil umræða hefur verið um framtíð Heimis með landsliðið en hann sagðist ætla að taka sér nægan tíma í að hugsa málið eftir HM í Rússlandi. Nú hefur hann ákveðið að halda ekki áfram með liðið.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir í tilkynningu frá knattspyrnusambandinu að Heimir hafi verið fyrsti kosturinn í starfið enda hafi hann unnið frábært starf á þeim árum sem hann hafi verið með liðið.

„Íslensk knattspyrna hefur aldrei staðið jafn framarlega og aldrei áður notið jafn mikillar athygli hérlendis sem erlendis.  Við bundum miklar vonir við að Heimir yrði áfram, en niðurstaðan er þó sú að Heimir hættir með liðið að eigin ósk og vil ég fyrir hönd KSÍ þakka honum kærlega fyrir samstarfið og óska honum alls hins besta í framtíðinni.  KSÍ mun nú taka næstu skref í ráðningu nýs landsliðsþjálfara,” segir Guðni

Heimir Hallgrímsson segist skilja sáttur og þakklátur eftir sjö góð ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af sterku liðsheildinni sem íslenski hópurinn hefur staðið fyrir. Yfirlýsingu Heimis má lesa hér að neðan.

„Eftir 7 góð ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands hef ég ákveðið að halda ekki áfram með A-landslið karla.  Ég skil sáttur og þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af þessari sterku liðsheild sem þessi hópur hefur fyrst og fremst staðið fyrir.  Hluti af hópi sem hefur rutt leiðina fyrir komandi kynslóðir og gert svo ótal margt í fyrsta skipti í sögunni.”

„Það eru forréttindi að geta yfirgefið verkefnið á tímapunkti eins og í dag.  Leikmenn á toppi síns ferils og hópurinn með mikla reynslu.  Umgjörð, vinnuumhverfi og verkferlar í föstum skorðum.  Góður árangur hefur tryggt okkur sæti meðal þeirra bestu næstu ár.  Árangurinn og frammistaðan hefur skapað virðingu fyrir íslenskri knattspyrnu.  Þó leikmenn eigi heiðurinn og stærsta þáttinn í velgengninni þá er þáttur starfsfólksins í kringum liðið ómetanlegur.  Verkefnin framundan eru stór og spennandi.  Um leið og ég þakka öllu samstarfsfólki, leikmönnum og stuðningsmönnum fyrir samstarfið, þá óska ég ykkur öllum velgengni næstu árin því ferðalagið er rétt að hefjast.“

Auglýsing

læk

Instagram