Fyndin upplifun að hitta Karl Kennedy

Leikarinn Alan Fletcher er væntanlegur til landsins í janúar. Fletcher hefur verið reglulegur gestur á skjám landsmanna undanfarin ár sem læknirinn Karl Kennedy í Nágrönnum.

Fletcher hyggst hitta aðdáendur sína og halda tónleika á Spot með hljómsveitinni, The X-Rays. Forsala hófst á Spot í dag. Skrifstofustjórinn Atli Már Ólafsson var mikill Nágrannaaðdáandi í æsku og hitti Fletcher í Melbourne um áramótin 2010.

Meira: „Heyrði að næstum því hálf þjóðin horfi á Nágranna“

„Að hitta kauða var ansi fyndin upplifun. Ég var að ferðast í Melbourne og fór að sjálfsögðu að skoða Ramsay Street — sem heitir alls ekki Ramsay Street,“ segir Atli Már.

Frétti svo af svokölluðu Neighbours night sem er á hverju mánudagskvöldi þar sem fólk borgar sig inn, situr við borð og svo koma þrír leikarar úr þáttunum inn og byrja að spjalla við fólkið, taka við spurningum úr sal og þess háttar. Eftir það gengu þau svo á milli borða til að allir sem vildu gætu tekið myndir af sér með þeim, sem maður að sjálfsögðu gerði.

Atli Már er ekki eins mikill aðdáandi Nágranna í dag og hann var í æsku.

„Ég var rosa aðdáandi sem krakki og mátti varla missa af þætti, horfði frrekar á þetta en teiknimyndirnar lá við, en svona þegar maður fór að eldast þá minnkaði áhorfið,“ segir hann. „En ef þetta er í sjónvarpinu þegar ég kveiki á því í dag þá er ég ekkert endilega að skipta um stöð.“

Meira: Topp 7 persónur í Nágrönnum.

Fletcher er þekktur fyrir að syngja Smokie-smellinn Living Next Door to Alice og skipta út nafninu Alice fyrir Susan, sem er að sjálfsögðu eiginkona hans í Neighbours. Hann tróð upp á Nágrannakvöldinu sem Atli mætti á.

„Eftir það allt saman, þá stígur Karl sjálfur upp á svið með bandinu sínu og tekur hálfgerða sveitaballastemmningu í nokkra klukkutíma,“ segir hann. „Veit nú ekki hvort að það sé sama band og hann tekur með til Íslands, en samkvæmt síðunni á þessum bar er bandið þar núna kallað: Waiting room.“

Fylgdu Nútímanum á Facebook og Twitter og þú missir ekki af neinu.

Auglýsing

læk

Instagram