Hlustaðu á nýtt lag með Þórunni Antoníu

Tónlistarkonan Þórunn Antonía og Bjarni M. Sigurðsson, best þekktur fyrir störf sín í Mínus, hafa sent frá sér lagið White Ravens. Hægt er að hlusta á lagið hér fyrir neðan.

Þórunn Antonía samdi lagið og textann en það er af væntanlegri samstarfsplötu hennar og Bjarna. Þórunn segir í viðtali á vef tímaritsins Glamour að þau deili ást á gömlum kántrístjörnum á borð við Dolly Parton og Townes van Zandt.

Þessi plata varð til útfrá þessari sameiginlegu ást. Við höfum verið að vinna að plötunni síðastliðin tvö ár með pásum vegna barneigna og beinbrota en hún er svo væntanleg með haustinu.

Hlustaði á lagið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram