Hópur ungmenna safnast saman fyrir utan 101 hótel til að sjá Kim Kardashian og Kanye West

Hópur ungmenna safnaðist saman fyrir utan 101 hótel í miðborg Reykjavíkur í dag til freista þess að hitta stórstjörnurnar Kim Kardashian og Kanye West. Eins og Nútíminn greindi frá í morgun komu þau til landsins í dag ásamt Kourtney Kardashian og fjölskylduvininum Jonathan Cheban.

Sjá einnig: Kim Kardashian og Kanye West mætt til landsins, fólk pissaði í buxurnar af spennu í Leifsstöð

Fréttablaðið hafði greint frá því að hjónin myndu dvelja á 101 hótel hér á landi. Kanye West hyggst taka upp tónlistarmyndband hér á landi, samkvæmt heimildum Nútímans og hefur það staðið til í nokkurn tíma.

Hópur ungmenna hafði safnast saman fyrir utan 101 hótel þegar þau yfirgáfu bygginguna í dag og stigu upp í fjallajeppa sem beið þeirra fyrir utan. Jonathan Cheban birti myndband á Snapchati sínu sem sýndi spennt ungmenni, öryggisverði, Kim og Kanye.

Þessu unga stúlka fékk selfí af sér með Kim

https://twitter.com/Kardashianpedia/status/721732571810439168

Hér má sjá myndband fjölskylduvinarins Jonathan Cheban

https://twitter.com/Kardashianpedia/status/721731627496435713

 

Auglýsing

læk

Instagram