Horfðu á Kim Jong Un fljúga flugvél

Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, fer á kostum í nýju áróðursmyndbandi sem hefur verið birt á Youtube. Myndbandið má sjá neðar í fréttinni.

Vefur tímaritsins Time bendir á myndbandið og segir að Youtube-notandinn stimmekoreas, sem birti myndbandið, hafi áður birt fjölmörg myndbönd sem tengjast Norður-Kóreu.

Í myndbandinu sést leiðtoginn fljúga flugvél með mikilli hjálp frá aðstoðarflugmanni sínum. Undir hljómar fjörug tónlist og rödd segir frá því sem er í gangi á skemmtilegan hátt hátt.

Þetta er stórkostlegt. Horfið á myndbandið hér fyrir neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=3j9S4IMsot8

Auglýsing

læk

Instagram