Hræðilegasta falda myndavél allra tíma

Hvað myndirðu gera ef þú sæir mann með keðjusög aflima mann í bílakjallara? Þú munt eflaust aldrei komast að því. Ólíkt fólkinu í myndbandinu hér fyrir neðan.

Hrekkurinn hlýtur að vera sá hræðilegasti og blóðugasti sem festur hefur verið á filmu.

Stjarna myndbandsins er Nick Santonastasso. Hann leikur aflimaða manninn. Hann fæddist með Hanhart-einkenni, sem er sjaldgæfur fæðingargalli sem verður til þess að fólk fæðist án útlima. Hann fæddist án fótleggja og einhentur.

Þið verðið að sjá þennan hrekk:

http://youtu.be/oFMsqrG9RWg

Hrekkurinn hefur slegið í gegn og er kominn upp í rúmlega fimm milljón áhorf á Youtube á aðeins tveimur dögum.

Hér má svo sjá Nick Santonastasso segja sögu sína:

Auglýsing

læk

Instagram