Hugljúft lag frá Of Monsters and Men: Plötusnúðurinn Natalie í textamyndbandinu

Of Monsters and Men hefur sent frá sér textamyndband við lagið Hunger, sem er fjórða lagið af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar, Beneath the Skin, sem kemur út 8. júní á Íslandi á vegum Record Records. Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan.

Hljómsveitin var þegar búin að senda frá sér lögin Crystals, I of the Storm og Empire.

Of Monsters and Men hefur verið að vinna með að láta fólk koma fram í textamyndböndum sínum og í þetta skipti er það plötusnúðurinn Natalie G. Gunnarsdóttir sem túlkar lagið á sinn hátt.

Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram