Íhugaði sjálfsvíg í Playboy-höllinni

Holly Madison íhugaði sjálfsvíg þegar hún bjó í Playboy-höllinni. Þetta kemur fram í æviminningum Madison sem koma út í sumar. Holly Madison var á tímabili ein af þremur kærustum Hugh Hefner en saman komu þau fram í sjónvarpsþáttunum Girls of the Playboy Mansion.

Í tilkynningu frá útgefandanum Harper Collins kemur fram að þrátt fyrir lífið í Playboy-höllinni hafi verið ævintýralegt á yfirborðinu þá þurftu Madison og hinar stúlkurnar að fylgja ströngum, kúgandi reglum og stjórnsemi.

Líf Madison varð fljótlega martröð og hún endaði á að íhuga sjálfsvíg eftir að hafa tapað sjálfsvirðingunni að eigin sögn.

Þá kemur fram að Madison sé einlæg í frásögn sinni um lífið í Playboy-höllinni og talar um eiturlyfin, kynlífið, misnotkunina, partíin og auðvitað Hugh Hefner sjálfan.

Áður hefur komið fram að Kendra Wilk­in­son, sem var ein af þremur kærustum Hefner ásamt Madison og Bridget Marquardt, var aðeins 18 ára þegar hún byrjaði með honum og flutti inn í Play­boy-höll­ina. Hefner var 78 ára á þeim tíma.

Wilkinson hefur viður­kennt að vera ávallt drukk­in eða und­ir áhrif­um eit­ur­lyfja þegar hún stundaði kyn­líf með hon­um.

Auglýsing

læk

Instagram