Ingunn slær í gegn í myndbandi Emmsjé Gauta, tekur þátt í svona vitleysu til að njóta lífsins

Línudansarinn Ingunn Hlín Björgvinsdóttir fer á kostum í nýju myndbandi Emmsjé Gauta. Ingunn er 85 ára gömul og Gauti segir að hún hafi verið meira en til í að dansa með þeim. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

„Freyr leikstjóri hafði samband við nokkra aðila innan félagssamtaka og íþróttafélaga og allir bentu á að tala við Ingunni. Hún kennir línudans og þar á meðal eldri borgurum,“ segir Gauti í samtali við Nútímann.

Hún var alveg rosalega hress allan tímann. Meira en til í að dansa með okkur. Hún sagði líka að maður þyrfti að taka þátt í svona vitleysu til að njóta lífsins. Hún sagði að það væru of margir línudansarar feimnir en ég get staðfest að Ingunn er andstæðan við það.

Freyr Árnason og Haukur Karlsson leikstýrðu myndbandinu sem er við lagið Ómar Ragnarsson.

En Gauti, af hverju Ómar Ragnarsson?

„Það þarf að lifa hátt, fljúga gegnum lífið og njóta þess eins og Ómar Ragnarson í rellunni.“

Auglýsing

læk

Instagram