Janúar fær á baukinn á Twitter: „Hvernig getur ennþá verið fokking janúar?“

Janúar er að margra mati versti mánuður ársins. Kuldi, myrkur og leit að bílastæði fyrir utan líkamsræktarstöðvar einkenna þennan fyrsta mánuð ársins. Á Twitter hefur janúar fengið slæma útreið og fólk virðist telja niður mínúturnar sem eftir eru af þessum vonda mánuði.

Þessi fyrsti mánuður ársins hefur í raun allt sem vondur mánuður þarf að hafa. Það er nánast ár í næstu jól, það er kalt úti, myrkur og reikningarnir frá því í desember streyma inn.

Við tókum saman nokkur tíst sem lýsa ástandinu meðal þjóðarinnar. En ekki örvænta: Það er bara einn dagur eftir af janúar og langt þangað til hann kemur aftur.

????

Þetta er allt að koma!

Já það er enn janúar….

HAHA

Það er ástæða fyrir því að þetta tíst er ekki enn komið með læk

Þetta er að verða búið krakkar!

Auglýsing

læk

Instagram