Jimmy Kimmel hafnar aðkomu að reiðiskasti Dennis Quaid

Bræðiskast Dennis Quaid er á allra vörum en marga grunar að um grín sé að ræða.

 

Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel hafnar því að myndband af bræðiskasti Dennis Quaid, sem hefur farið eins og eldur í sinu um netheima, sé hluti af einhvers konar hrekk frá honum.

Sjá einnig: Dennis Quaid sturlast eins og Christian Bale

Kimmel tjáði sig um málið í þætti sínum í gær og harmaði að fólk geti ekki treyst honum þar sem hann hefur aðeins hrekkt fólk sirka 50 sinnum. Nútíminn og fleiri fjölmiðlar hafa gefið í skyn að Kimmel sé á bakvið grínið en hann hafnar því.

Hér má sjá Jimmy Kimmel vísa sögusögnum um aðkomu sína til föðurhúsanna.

https://youtu.be/ggMmkQZjBQY

Auglýsing

læk

Instagram