Joey skuldaði Chandler 16 milljónir

Allt í einu er fólk byrjað að horfa á Friends aftur — þó sumir hafi aldrei hætt. Þættirnir duttu inn á Netflix um áramótin og sem hefur gefið þáttunum nýtt líf.

 

Sjá einnig: 14 hlutir sem Friends kenndu okkur

Joey var ansi duglegur við að fá lánaða peninga frá Chandler. Svo duglegur að nú hefur verið reiknað út að hann skuldaði vini sínum 119.760 dali þegar þátturinn söng sitt síðasta. Það eru um 16 milljónir króna.

Á vefnum Reddit er þráður þar sem stærðfræði er rædd frá ýmsum hliðum.

Notandi síðunnar spurði á dögunum hversu mikið Joey skuldaði Chandler og annar notandi tók sig til og reiknaði það út.

Hann tók inn í jöfnuna allt frá myndatökum til læknaheimsókna. Þá hafði húsaleigan sitt að segja, matur og auðvitað stólarnir og græjurnar sem hann keypti þegar þeir voru rændir. Gróflega áætlað voru þetta 119.760 dalir. Peningar sem Chandler sér aldrei aftur.

Maður veltir fyrir sér hversu mikið Chandler þénaði ef hann náði að halda Joey á floti ásamt því að spara peninga sem Monica vildi svo nota í brúðkaup þeirra.

Auglýsing

læk

Instagram