Jóhann einn kynþokkafyllsti forritari heims

Forritarinn Jóhann Þorvaldur Bergþórsson er á lista vefs Business Insider yfir kynþokkafyllstu forritara heims. Vísir greinir frá þessu.

Jóhann starfar hjá fyrirtækinu Plain Vanilla við þróun á spurningaleiknum QuizUp. Á listanum má finna forritara frá fyrirtækjum á borð við Facebook, Snapchat og Ubisoft.

Í umsögn vefsins um Jóhann kemur fram að hann sé krúttið á bakvið QuizUp og að hann hafi verið á lista Business Insider yfir forritara sem fólk ætti að fylgjast með árið 2014.

Þorsteinn Friðriksson, framkvæmdastjóri Plain Vanilla, birti þessa mynd af Jóhanni á dögunum þar sem hann gerði kynþokkafulla útreikninga:

Auglýsing

læk

Instagram