Jón Gnarr birti mynd af súrum selshreifum á Twitter og fólk skildi ekkert: „Eru þetta hendur!?“

Jón Gnarr varpaði sprengju á Twitter í vikunni þegar hann birti mynd af súrum selshreifum. Ekki nóg með það, þeir voru tilbúnir til neyslu á hvítum matardiski. Og ekki nóg með það, þeir litu út eins og hendur.

Eins. Og. Hendur.

Og skiljanlega skildi enginn neitt. Grínistinn og ljóðskáldið Dóri DNA reið á vaðið og sagði það sem allir voru að hugsa

Og fólk krafðist svara

Og skyndilega var fólk utan úr heimi farið að velta málinu fyrir sér. Jón var meðal annars spurður hvort hann hafi aflimað tröll í kvöldmat

En sumir voru sáttir og jafnvel bara svangir

Auglýsing

læk

Instagram