Jón Jónsson, Ágústa Eva og Eyþór Ingi á Þjóðhátíð

Jón Jónsson kemur fram á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Þá kemur hljómsveitin Buff fram á sunnudagskvöldinu ásamt fjórum söngvurum: Ágústu Evu, Eyþóri Inga, Páli Óskari og Sverri Bergmann.

Bubbi & Dimma hafa einnig boðað komu sína ásamt FM Belfast og AmabAdamA. Þá koma reynsluboltarnir í Nýdanskri, Sálinni hans Jóns míns, Landi og Sonum og Sóldögg einnig fram.

Maus, Júníus Meyvant og strákarnir í FM95Blö koma einnig fram og Ingó sér um brekkusönginn og kemur fram með Veðurguðunum.

Auglýsing

læk

Instagram