today-is-a-good-day

Jón Jónsson, Sverrir Bergmann og FM95BLÖ á Þjóðhátíð í eyjum í ár

Áfram bætist við dagskránna á Þjóðhátíð í Eyjum. Í vikunni var tilkynnt um að þeir Jón Jónsson og Sverrir Bergmann komi fram á hátíðinni í ár. Sverrir mun koma fram ásamt hljómsveitinni Albatross á sunnudagskvöldvökunni ásamt Agli Ólafs og Svölu Björgvins.

Sverrir Bergmann kom fram á sinni fyrstu Þjóðhátíð árið 2001 með hið sígilda Án Þín sem er síðan þá orðinn fastur þáttur í einstakri syngja-með-stemningu í Herjólfsdal en hátíðin í ár er sú ellefta í röð hjá Sverri. Jón Jónsson kom fram á sinni fyrstu Þjóðhátíð árið 2011.

Þá munu drengirnir í FM95BlÖ einnig koma fram á hátíðinni í ár en frá því er greint á vef Vísis. Á laugardagskvöldinu mun Sverrir Bergmann koma fram með þeim Auðunni Blöndal, DJ Muscleboy og rándýrum leynigestum.

Sverrir Bergmann kom fram á sinni fyrstu Þjóðhátíð árið 2001 með hið sígilda Án Þín sem er nú orðið fastur liður á hátíðinni. Hátíðin í ár er sú ellefta í röð hjá Sverri. Jón Jónsson kom fyrst fram á Þjóðhátíð árið 2011.

Dagskráin verður fullmótuð í lok júní en enn á eftir að staðfesta nokkur atriði.

Dagskrá Þjóðhátíðar 2019:
Herra Hnetusmjör, Huginn, GDRN, Flóni, ClubDub, Friðrik Dór, JóiPéxKróli, SZK, Lukku Láki, GRL PWR, Bjartmar Guðlaugs, ÁMS, Aldamótatónleikarnir, Svala Björgvins og Egill Ólafs. 
Auglýsing

læk

Instagram