Karl og kona í haldi eftir aðgerð sérveitarinnar – Ógnandi með skotvopn

Kona og karl voru handtekin við American Style og Pizza King í Skipholti á tólfta tímanum í dag og bíður nú yfirheyrslu. Þau eru í haldi lögreglunnar í tengslum við rannsókn á vopnaburði í Stangahyl í Ártúnsholti. Um hálf ellefu leytið í morgun barst tilkynning til lögreglu vegna ógnandi manns með skotvopn. Þetta kemur fram á vef Rúv.

Vitni sögðu að einu skoti hefði verið hleypt af en því hafi ekki verið beint að fólki. „Bifreiðin, sem fólkið var á, var haldlögð, sem og vopnið sem um ræðir, auk skotfæra. Um loftbyssu var að ræða,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Von er á frekari tilkynningum frá lögreglu vegna málsins síðar í dag.

Auglýsing

læk

Instagram