Keypti nokkra jakka af kurteisum mönnum á bílastæði og segist hafa verið blekktur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ítrekað varnarorð sín til þeirra sem íhuga að eiga viðskipti við vingjarnlega, erlenda sölumenn sem bjóða vandaðan fatnað til sölu á mjög hagstæðu verði.

Í tilkynningu frá lögreglu er sagt frá manni sem virðist hafa keypt köttinn í sekknum. „Fyrr í dag leitaði maður til lögreglu og sagði farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti við tvo erlenda menn, en þeir seldu honum nokkra jakka eftir að hafa tekið hann fyrst tali á bifreiðastæði við banka í austurborginni,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Grunur leikur á að flíkurnar sem maðurinn keypti séu ekki í þeim gæðaflokki sem um var talað.

Í tilkynningunni kemur fram að sölumennirnir séu jakkafataklæddir og komi vel fyrir. „[Þeir] virðast eiga auðvelt með að blekkja fólk, en málið frá því fyrr í dag er ekki það eina sem hefur ratað á borð lögreglu. Ef fólk sér til umræddra sölumanna, sem sagðir eru vera á ljósgrárri bifreið, er það beðið um láta lögreglu vita.“

Auglýsing

læk

Instagram