Khloe Kardashian stefnt fyrir að birta mynd af sjálfri sér á Instagram

Raunveruleikastjörnunni Khloe Kardashian hefur verið stefnt fyrir að birta myndir af sjálfri sér á Instagram. Myndin var tekin af fyrirtækinu Xposure og var birt í vefútgáfu The Daily Mail. Stjarnan er sögð hafa tekið myndina þaðan og birt á Instagram. Hún sagði aftur á móti ekki hver eigandi myndarinnar væri.

Fyrirtækið Xposure sérhæfir sig í ljósmyndum af frægu fólki. Í stefnu þess segir að myndin sem stjarnan birti sé mjög verðmæt og með því að birta myndina hafi hún skaðað frekari markaðssetningu og sölu á upprunalegu myndinni.

Fái fyrirtækið sínu fram fyrir dómstól í Los Angeles í Bandaríkjunum þarf Kardashian að fjarlægja myndina.

Auglýsing

læk

Instagram