Kim Kardashian er nakin og olíuborin í tímaritinu Love

Kim Kardashian situr nakin fyrir á ný í tímaritinu Love, sem kemur út á mánudaginn. Kim braut internetið í nóvember í fyrra þegar hún birtist kviknakin á síðum tímaritsins Paper og virðist ætla að endurtaka leikinn nú, nakin og olíuborin. Helstu fjölmiðlar hafa fjarlægt myndina sem lak af Kim í dag.

Nýjum myndum úr tímaritinu hefur verið lekið á netið. Á dögunum lak mynd sem sýndi beran bossa Kim og í dag lak mynd ritskoðuð mynd sem sýnir Kim nakta og olíuborna með gleraugu á nefinu. Allar Kardashian-systurnar sitija fyrir í tölublaðinu sem er gestaritstýrt af fyrirsætunni Cara Delevingne.

Katie Grand, ritstjóri Love, segir í viðtali í tímaritinu Grazia að hún hafi valið fötin á Kim Kardashian fyrir myndatökuna úr vor- og sumarlínu Prada.

Ég var mjög stressuð en Kim leyfði okkur að stýra myndatökunni. Ég var búinn að hitta Kanye en við höfðum aldrei unnið saman og ég veit hvernig hann er í sambandi við föt. Hann var alltaf að segja að hann trúði ekki að Prada væri til í að gera þetta fyrir Kim.

Hér má sjá forsíðu Love, sem kemur út á mánudaginn.

Auglýsing

læk

Instagram