Kolfinna bíður eftir svari frá Emmsjé Gauta

Hljómsveitin Reykjavíkurdætur birti á Facebook-síðu sinni í nótt myndband undir fyrirsögninni: „Kylfan er mætt og þú veist það endar illa.“ Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Örskýring um Emmsjé Gauta og Reykjavíkudætur

Í myndbandinu segist rapparinn Kolfinna Nikulásdóttir ekki fá neitt svar frá emmsjé en öllum má vera ljóst að þar á hún við rapparann Emmsjé Gauta, sem sagði á Twitter um helgina að Reykjavíkurdætur væru „feit pæling sem gekk ekki upp“.

„Kylfan er mætt. Og hún bíður og bíðir og bíður. Emmsjé, ég hef orðið fyrir vonbrigðum.“

Óljóst er hverju Gauti á að svara en hann var í viðtali á Vísi í gær ásamt Kolfinnu þar sem þau skutu fram og til baka.

 

Í öllu falli er ljóst að markmið Gauta um að starta ekki beefi náðist ekki.

Auglýsing

læk

Instagram