Leikari með umdeildan og leynilegan Twitter-aðgang afhjúpaður: „Þú ert svona líka nett ógeðslegur“

Leikarinn Þórir Sæmundsson hefur haldið úti aðganginum Boring Gylfi Sig á Twitter frá því í desember árið 2017. Aðgangurinn sem hefur verið umdeildur á meðal Íslendinga á Twitter frá stofnun hefur alla tíð verið nafnlaus en Þórir var afhjúpaður um helgina.

Sjá einnig: Þórir var rekinn úr Þjóðleikhúsinu vegna typpamynda

Karólína Jóhannsdóttir birti skjáskot af færslu sem birtist á aðganginum í gær. Þar má sjá skjáskot af Instagram aðgangi Þóris. Stuttu síðar birtist færsla á Twitter aðgangi Boring Gylfa Sig þar sem stóð: „Jæja það hlaut að koma að því. Hæ ég er boring Þórir Sæm.“

Þórir er ekki vinsæll á meðal einstaklinga á Twitter en hann hefur leyft sér að láta ýmislegt flakka í ljósi nafnleyndarinnar. Þá hefur hann áður komist í fréttirnar þegar honum var vikið frá störfum í Þjóðleikhúsinu eftir að hann sendi mynd af sjálfum sér með stífan getnaðarlim til samstarfskonu í leikhúsinu á Menntaskólaaldri.

 

Auglýsing

læk

Instagram