Leikkonan Paz de la Huerta stígur fram og sakar Harvey Weinstein um nauðgun

Bandaríska leikkonan Paz de la Huerta, segir Harvey Weinstein hafa nauðgað sér í tvígang í New York árið 2010. Hún greinir frá þessu í viðtali við bandaríska blaðið  Vanity Fair. Hún bætist með þessu í hóp fjölda kvenna sem sakað hafa Weinstein um kynferðisofbeldi.

De La Huerta, sem fór með stórt hlutverk í sjónvarpsþáttunum Boardwalk Empire, segir Weinstein hafa nauðgað sér eftir að hafa skutlað henni heim.

Tugir kvenna hafa á síðustu vikum stigið fram og sagt frá áreitni Weinstein en auk bresku lögreglunnar eru lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum með kvikmyndaframleiðandann til rannsóknar. Weinstein sjálfur hefur neitað öllum ásökunum.

Auglýsing

læk

Instagram