Lögreglan á Norðurlandi vestra vill ná tali af ferðamanni sem gengur í hús og spyr um gistingu

Lögreglan á Norðurlandi vestra vill ná tali af erlendum ferðamanni sem hefur ýmist gengið inn í hús eða bankað á dyr hjá fólki í umdæminu og spyr hvar sé hægt að finna gistingu. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Lögreglunni hafa borist nokkrar tilkynningar um manninn en ekki er vitað hvort hann sé að ferðinni í saknæmum tilgangi eða sé hreinlega að leita sér að gistingu.

Lögreglunni hefur ekki tekist að hafa uppi á ferðamanninum og ekki er vitað hvernig hann ferðast á milli staða en í athugasemd við færsluna kemur fram að hann hafi verið á ferðinni í Skagafirði í gær.

Lögreglan biður fólk um að hringja í 112 ef þessi ferðamaður bankar á dyr eða gengur inn í hús en mikilvægt sé að lögreglan nái tali af honum

Auglýsing

læk

Instagram