Lögreglan lýsir eftir Guðmundi Flóka

Uppfært kl. 19.57: Guðmundur er fundinn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Flóka Péturssyni, 20 ára, en ekkert hefur spurst til hans frá því sl. föstudag, 20. október. Guðmundur er grannvaxinn, 174 sm á hæð, um 70 kg og með stutt, dökkt hár. Hann er hugsanlega klæddur í kamellitaða 66N úlpu, gallabuxur og ljósa Timberlandskó. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Guðmundar, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 112. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Auglýsing

læk

Instagram