Loksins loksins, Justin Bieber birtir mynd af sér á nærbuxunum á Íslandi

Það hlaut að koma að því, Justin Bieber er búinn að birta mynd af sér á nærbuxunum á Íslandi. Bieber birti mynd á Instagram eftir að hann fékk sér sundsprett og á Vísi kemur fram að myndin sé tekin í Fjaðrárgljúfri.

Sjá einnig: Justin Bieber skálar í rauðvíni í Vestmannaeyjum og birtir mynd af sér við sjóinn

Myndina má sjá hér fyrir neðan. Hann klikkar ekki á Calvin Klein-brókunum, enda andlit fyrirtækisins.

View this post on Instagram

Glacier dip in #iceland

A post shared by Justin Bieber (@justinbieber) on

Eins og Nútíminn greindi frá mætti Bieber til landsins fyrir hádegi í gær. Hann var var á ferðinni í Reykjanesbæ ásamt her lífvarða og nokkrum vinum sínum og kom meðal annars við Lemon og Subway.

Ýmislegt gekk á en skömmu eftir að hann yfirgaf Subway birtist á netinu mynd af honum sem virtist vera úr öryggismyndavél staðarins.

Í svari Subway við fyrirspurn notanda á Facebook kemur fram að það sé alls ekki í lagi en persónuverndarlög gilda um notkun slíkra mynda opinberlega. Starfsfólk staðarins fékk tiltal.

Taktu prófið! Hvað veistu um Justin Bieber?

Auglýsing

læk

Instagram