Maðurinn sem féll í Gullfoss er hælisleitandi

Maðurinn sem féll í Gullfoss í gær var hælisleitandi sem kom til Íslands fyrir nokkru síðan. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Í tilkynningunni kemur fram að ekkert bendir til þess að þetta atvik hafi orðið með saknæmum hætti. „Laust fyrir klukkan 17 í gær  fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að maður hefði fallið í Gullfoss,“ segir í tilkynningunni.

Allt tiltækt viðbragðslið á svæðinu var kallað út ásamt björgunarsveitum á nærsvæðum, sem og þyrlur Landhelgisgæslunnar. Leitað var fram til miðnættis í gærkvöld, en leit þá hætt og settir upp sjónpóstar á svæðinu til að fylgjast með ánni í nótt. Uppúr kl 10 í morgun var svo leit haldið áfram og verður henni haldið áfram í dag.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að lögreglan hafi rætt við fjölmarga aðila, bæði sem voru á staðnum og voru nokkrir sjónarvottar sem gátu gefið greinargóða lýsingu á þeim er fór niður fossinn. „Hann sást á tveimur stöðum frá útsýnispöllum sem eru við fossinn.“

Lögreglan fann bifreið á bifreiðastæðinu við Gullfoss í gærkvöldi og var hún tekinn til rannsóknar. „Rannsókn lögreglunnar hefur leitt í ljós að um er að ræða erlendan hælisleitanda, sem kom til Íslands fyrir nokkru síðan. Enn þá er unnið að rannsókn málsins og eru skýrslutökur í gangi vegna,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Auglýsing

læk

Instagram