Mjölnir flytur í gamla húsnæði Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð

Íþróttafélagið Mjölnir flytur í Öskjuhlíðina í gamla húsnæði Keiluhallarinnar á næsta ári. Þetta kemur fram á vef MMA frétta.

MMA fréttir greina frá því að þetta hafi verið tilkynnt á sérstakri afmælishátíð Mjölnis rétt í þessu. Mjölni er tíu ára um þessar mundir en unnið hefur verið að húsnæðismálum íþróttafélagsins undanfarna mánuðu.

Mjölnir er nú til húsa á Seljavegi, þar sem Loftkastalinn var áður og hefur verið þar í fjögur ár. Starfsemun verður flutt á næsta ári. Nýja húsnæðið er stórt, salirnir sex auk þess sem glæsilegt útisvæði er við húsið.

 

Auglýsing

læk

Instagram