Mynd af Sigurði endaði í þætti Jimmy Fallon án þess að hann hafði hugmynd um það

Glímukappanum Sigurði Kolbrúnarsyni brá í brún á dögunum þegar mynd af honum og fyrrverandi kærasta hans birtist óvænt í spjallþætti Jimmy Fallon. Myndin birtist í föstum lið sem kallast Thank You Notes þar sem Fallon skrifar hugljúf grínþakkarbréf.

Sjáðu innslagið hér fyrir neðan.

Í samtali við Nútímann segist Sigurður ekki hafa hugmynd um hvernig hann rataði í þáttinn. „Ég vaknaði einn morguninn við það að félagi minn sendi mér eitthvað sem átti að vera fyndið á spjallinu. Þegar ég sá það var ég bara í sjokki — hafði aldrei séð þessa mynd,“ segir hann.

Spjallþáttur Jimmy Fallon er einn sá vinsælasti í Bandaríkjunum en Sigurður áttaði sig ekki á því í fyrstu.

Ég varð því ekkert of peppaður. Það var ekki fyrr en ég var búinn að sjá viðbrögð fjölmargra einstaklinga að ég fattaði að þetta var huge.

En hafði kærastinn ekki örugglega húmor fyrir þessu?

„Jú, auðvitað. Enda toppeintak.“

Sigurður æfir brasilískt jiu jitsu í Mjölni og lenti í öðru sæti í sínum flokki á Íslandsmeistaramótinu um helgina.

„Það vildi svo skemmtilega til að sá sem nældi í bronsið og sigurvegarinn í flokknum ólust upp í Vesturbænum eins og ég. Þannig að ég get sagt að Vesturbæjarsið að bikarinn er kominn heim!“

Taktu prófið! Þekkir þú þessar klassísku jólamyndir ef við gefum þér bara einn ramma úr hverri?

Auglýsing

læk

Instagram