Nýtt íslenskt grín: Þáttaröð í heild sinni á Youtube

Cloud of Ash, ný íslensk gamanþáttaröð, datt í heild sinni á Youtube síðdegis í dag. Þættirnir eru örstuttir, í kringum þrjár mínútur, og fjalla um Atla og Brogan sem starfa í lundabúð í Reykjavík. Fyrsta þáttinn má finna hér fyrir neðan.

Steindór Grétar Jónsson skrifaði þættina og Garðar Stefánsson leikstýrir. Með aðalhlutverk fara Atli Bollason og Brogan Davison

Ferðamenn, og ýmsir fyndnir menningarárekstrar þeim tengdir, koma mikið við sögu í þáttunum sem eru að mestu á ensku. Horfðu á fyrsta þáttinn hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram