Of Monsters and Men frumsýnir nýja myndbandið sitt „á Íslandi“

Of Monsters and Men hefur sent frá sér myndband við lagið Empire.

Hljómsveitin birtir myndbandið á Facebook-síðu sinni í dag og beinir því á íslenskan markað en myndbandið hefur ekki enn verið frumsýnt erlendis. Auðvelt er að stilla hvaða landsvæði sjá efni sem sett er inn á Facebook.

„Hæ Ísland! Það er með stolti og ánægju sem við kynnum myndbandið fyrir nýjustu smáskífuna okkar, Empire! Tékkið endilega á því!“ segir í skilaboðum frá hljómsveitinni sem kemur fram í Hörpu síðar í ágúst.

Smelltu hér til að horfa á myndbandið. Vegna fyrrgreindra stillinga er ekki hægt að setja það inn í færsluna.

Auglýsing

læk

Instagram