Pissaði á hendina á sér áður en hann tók í hendina á Harvey Weinstein

Bandaríski leikarinn Ron Perlman sagði frá athyglisverðu atviki á Twitter síðu sinni í gær. Þar segir hann frá því þegar að kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein bað hann um að taka í hendina á sér á góðgerðasamkomu.

Perlman sem leikur í sjónvarpsþáttunum Sons of Anarchy segir að hann hafi skotist inn á baðherbergi og pissað yfir hendina á sér áður en að hann sneri til baka og tók í hendina á Weinstein.

Weinstein er ekki vinsæll í Hollywood en tugir kvenna hafa sakað hann um kynferðislega misnotkun. Weinstein hefur harðneitað öllum ásökunum en lögfræðingur hans efast um áreiðanleika þeirra sem hafa sakað hann og segist handviss um að hann geti hreinsað nafn hans.

Hann hefur verið kærður fyrir tvær nauðganir og mun mæta fyrir dómstóla 20. september á þessu ári. Hann á yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisvist verði hann fundinn sekur.

Perlman er mjög pólitískur á Twitter og hefur nýverið notað vettvanginn til þess að gagnrýna aðskilnað barna og foreldra við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna. Hann hefur áður talað um Weinstein á Twitter en þá lýsti hann yfir áhuga sínum á því að berja hann.

Auglýsing

læk

Instagram