QuizUp keppir við Kim Kardashian

Vefsíða tímaritsins Adweek leitar nú að heitustu vefsíðunum, öppunum, samfélagsmiðlunum, símunum, tölvuleikjunum og öðru sem tengist vefnum. Lesendur Adweek sjá um valið og kosningin stendur til 1. desember. Sigurvegararnir verða svo tilkynntir í Adweek 8. desember.

QuizUp, símaleikur Þorsteins Friðrikssonar og félaga í Plain Vanilla, er kominn í úrslit í flokki heitustu símaleikjanna og keppir þar meðal annars við Kim Kardashian. Þannig séð.

Þar eru einnig tilnefndir Candy Crush, Swing Copters og Kim Kardashian: Hollywood. Talið er að Kim Kardashian sjálf fái allt að 45% af hagnaðinum af leiknum sem er nefndur í höfuðið á henni.

Snjallsímaleikurinn Kim Kardashian: Hollywood þénar um 700.000 dali, rúmlega 80 milljónir íslenskra króna á dag. Leikurinn snýst um að búa til persónu og koma henni á hinn svokallaða A-lista í Hollywood en stærstu stjörnur heims eru á honum. Til að komast á A-listann þarf spilarinn að vingast við frægt fólk, fara í myndatökur og klæðast dýrum fötum.

Hér má sjá listann yfir vörumerkinn sem komust í úrslit hjá Adweek:

Heitasta stafræna vörumerki ársins:
Amazon
Apple
GoPro
Netflix
Snapchat
Vice

Heitasti sprotinn:
Imgur
Snapchat
Whisper

Heitasta stafræna þráhyggjan:
Netflix
Reddit
Twitch
YouTube

Heitasti stafræni miðillinn: 
Jezebel
TMZ
Vice

Heitasta íþróttavörumerkið:
Deadspin
ESPN
Grantland
Yahoo Sports

Heitasta stafræna markaðssetning:
Dunkin’ Donuts
Newcastle Brown Ale
Oreo
Starbucks
Taco Bell

Heitasta dótið:
Beats by Dre
GoPro
Oculus Rift
Samsung Galaxy

Heitasti myndbandsspilarinn:
Amazon
HBO GO
Netflix
Twitch
YouTube

Heitasti myndbandaframleiðandinn:
Collective Digital Studio
Defy Media
Fullscreen
Funny or Die

Heitasta vefserían í áskrift:
The Awesomes (Hulu)
House of Cards (Netflix)
Orange Is the New Black (Netflix)
Transparent (Amazon)

Heitasta ókeypis vefserían:
Between Two Ferns (Funny or Die)
Comedians in Cars Getting Coffee (Crackle)
Kids React (YouTube)

Heitasta myndbandastjarnan:
TheFineBros
Jenna Marbles
Tyler Oakley
Michelle Phan
Smosh
VitalyzdTV

Heitasta Vine-stjarnan:
Nash Grier
Jerome Jarre
Logan Paul

Heitasti samfélagsmiðillinn:
Facebook
Instagram
Snapchat
Twitter
Vine

Heitasta fræga manneskjan á samfélagsmiðlum:
Beyoncé
Miley Cyrus
Rihanna
Patrick Stewart
George Takei

Heitasta skilaboðaforritið:
Facebook
Kik
WhatsApp

Heitasta vefverslunin:
Alibaba
Amazon
Etsy

Heitasta stefnumótaþjónustan:
Grindr
OkCupid
Tinder

Heitasta tónlistarappið:
iHeartRadio
Pandora
Spotify

Heitasti leikjatölvuleikurinn: 
Call of Duty
Watch Dogs
Minecraft

Heitasti símaleikurinn:
Candy Crush
Swing Copters
Kim Kardashian: Hollywood
QuizUp

Auglýsing

læk

Instagram