Ráðist á Aron Pálmarsson í miðbænum

Handboltamaðurinn Aron Pálmarsson er bólginn eftir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Þetta kemur fram á Vísi.

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari staðfestir í samtali við Vísi að Aron, leikmaður íslenska landsliðsins og Kiel í Þýskalandi, hafi orðið fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Aron segir þó að þátttaka nafna síns með íslenska landsliðinu á HM í Katar sé ekki í hættu:

HSÍ mun fjalla nánar um málið síðar í dag. Maður var sjokkeraður þegar maður heyrði fyrst af þessu.

Íslenska landsliðið hefur æfingar fyrir HM í Katar í dag en Aron mun ekki æfa í dag, samkvæmt frétt Vísis.

Óvíst er hvort að Aron spili með í æfingaleikjum gegn Þýskalandi á sunnudag og mánudag.

Auglýsing

læk

Instagram