Rasísk veggspjöld í Vesturbænum: „Það er í lagi að vera hvítur“

Veggspjald sem á stendur „It‘s OK to be white“, eða „Það er í lagi að vera hvítur,“ hefur verið hengt á ruslafötu í Vesturbæ Reykjavíkur. Hekla E. Aðalsteinsdóttir Twitter-notandi vakti athygli á málinu á Twitter síðu sinni í dag.

Í frétt DV.is um málið kemur fram að  slagorðið eigi rætur sínar að rekja til herferðar nýnasista á spjallsíðunni 4chan. Þá hefur slagorðið „Það er í lagi að vera hvítur“ verið notað af rasistasamtökum á borð við Ku Klux Klan.

Veggspjöld af þessari gerð hafa verið hengd upp á götum úti í Bandaríkjunum, Bretlandi, Ástralíu og víðar, að því er fram kemur í frétt DV.  

Auglýsing

læk

Instagram